
Terra hf.
Terra er líflegur og fjölbreyttur vinnustaður. Hjá félaginu starfa um 260 einstaklingar á starfsstöðvum á nokkrum stöðum á landinu. Alla daga vinnum við af dugnaði og eljusemi að því að gera góða hluti fyrir umhverfið.
Við veitum fjölbreytta þjónustu á sviði umhverfismála, einkum á sviði úrgangsstjórnunar og endurvinnslu. Frá 1984 hefur Terra lagt áherslu á að þjóna fyrirtækjum, sveitarfélögum og einstaklingum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt þar sem tekið er fullt tillit til aðstæðna á hverjum stað og mismunandi þarfa viðskiptavina. Lögð er áhersla á að koma öllum þeim efnum sem falla til í viðeigandi farveg og aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og jákvæðum og góðum starfsanda. Við erum með öflugt starfsmannafélag sem heldur fjölbreytta viðburði yfir allt árið.

Terra Akureyri - hressandi útivinna í sumar
Terra á Akureyri leitar af tveimur duglegum, þjónustulunduðum og jákvæðum einstaklingum í sumarstörf. Um er að ræða sérverkefni þar sem farið verður um Norðurland eystra og ílát í eigu félagsins verða merkt með nýjum númerum. Einnig verður unnað við að lagfæra ílát þar sem þess er þörf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Merking íláta á Norð-austur svæðinu
- Minniháttar lagfæringar á ílátum
- Málningarvinna bæði hjá viðskiptavinum og á starfssvæði Terra á Akureyri
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Jákvæðni og þjónustulund
- Bílpróf
- Góðir samskiptahæfileikar
- Stundvísi
- Metnaður og hvati til þess að standa sig vel í starfi
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
Auglýsing birt18. júní 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Terra Norðurland - Hlíðarfjallsvegur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lambhagi óskar eftir starfsmanni við öll almenn garðyrkjustörf og viðhald.
Lambhagi ehf.

Uppsetningar innréttinga
GKS innréttingar

Hellulagnir
Fagurverk

Við leitum að sterkum liðsmanni í byggingarvinnu!
Sólhús ehf

Vanur Málari óskast
TréogMálun

Steypudælubílstjóri (Concrete Pump Operator)
Steypustöðin

Construction worker
Ísbor ehf

Vélamaður / gröfumaður
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf

Starfsmaður fráveitu - Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær

Smiður óskast
Stokktré ehf.

Smiðir - byggingavinna
HH hús

Múrari / Mason and Tiler Wanted
Íslenskir Múrverktakar ehf.