

Tækniteiknari raflagna
Vegna aukinna umsvifa óskar Raftákn eftir dugmiklum tækniteiknara til starfa á skrifstofu félagsins annað hvort á Akureyri eða Reykjavík.
Hjá Raftákni starfa 36 manns að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á Íslandi og erlendis. Viðskiptavinir Raftákns eru m.a. opinberir aðilar, veitufyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, stóriðjufyrirtæki og byggingarverktakar. Raftákn er framsækið fyrirtæki sem leitast við að bjóða viðskiptavinum uppá bestu lausnirnar hverju sinni og veita framúrskarandi þjónustu.
Raftákn hefur að skipa starfsfólki sem hefur sérþekkingu í BIM og nýtingu gervigreindar við úrlausn verkefna. Við leitumst við að gera sífellt betur og viljum því gjarnan fá öfluga einstaklinga inn í okkar teymi sem elska það að fá að þróast og eflast í starfi.
Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa með starfsstöðvar í Kópavogi og á Akureyri.
- Teiknun raflagna í Revit
- Vinna með hönnuðum að gerð 3d módela í Revit
- Rafmagnstæknifræði, rafvirkjun, rafiðnfræði eða tækniteiknun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á Revit og Autocad eða sambærileg teikniforrit er skilyrði.
- Þekking á raflagnahönnun er mikill kostur.
- Þekking á BIM og ACC umhverfi er mikill kostur.
- Rík þjónustulund, samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta er nauðsynleg.
Íslenska
Enska