OK
OK
Á árinu 2022 sameinuðust Opin Kerfi og Premis undir nafninu OK, en þar sameinast eldmóður, reynsla og þekking starfsfólks sem setur þarfir viðskiptavina í forgang. OK hefur að skipa öflugu teymi reyndra sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni með langa reynslu af ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá flestum af stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins ásamt stórum erlendum viðskiptavinum. Vinnustaðurinn er krefjandi og skemmtilegur þar sem starfsmenn eru hvattir til að vera sjálfstæðir í starfi og hafa áhrif á eigið starfsumhverfi. Hjá OK starfar samhentur hópur fólks og er kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda, en það hefur skilað sér í ánægðu starfsfólki sem hefur fengið tækifæri til að vaxa og dafna í leik og starfi. OK hlaut viðurkenninguna Fyrirtæki ársins 2023 sem veitt er fyrirtækjum fyrir framúrskarandi vinnuumhverfi og starfsanda, en fyrirtækið hefur hlotið þá viðurkenningu þrjú ár í röð.
OK

Tæknimaður í Framlínuþjónustu

OK leitar að áhugasömum einstakling til að bætast við frábært teymi okkar í fjar- og vettvangsþjónustu. Um er að ræða fullt starf á dagtíma.

Starfið hentar einkar vel þjónustuliprum einstaklingum sem hafa áhuga á tækni og eiga auðvelt með samskipti við viðskiptavini hvort sem er í síma eða í eigin persónu.

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við alla sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur útstöðva og annarra jaðartækja
Flokkun verkbeiðna og símsvörun
Umsýsla og aðstoð með Microsoft 365 umhverfi
Þjónusta við viðskiptavini bæði í fjar- og vettvangsþjónustu
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Nám í kerfisstjórnun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af tölvuumsjón er kostur
Hreint sakavottorð er skilyrði
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Geta til að vinna í hóp og vera hluti af teymi
Góð færni í íslensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Góð færni í ensku, bæði skrifuðu og töluðu máli
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
Auglýsing stofnuð15. september 2023
Umsóknarfrestur24. september 2023
Starfstegund
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.