Tæknilegur vörustjóri innri viðmótskerfa
Við leitum að öflugum aðila í starf tæknilegs vörustjóra innri viðmótskerfa. Tæknilegir vörustjórar eru þátttakendur í þverfaglegum vöruþróunarteymum Arion og hlutverk þeirra spilar stórt hlutverk í samspili vöru, ferla og tækni. Í því felst m.a. utanumhald á backlog tækniþróunar, aðkoma að rekstri, greiningar á kröfum stærri verkefna og samskipti við birgja. Tæknilegi vörustjórinn vinnur náið með öllum hlutverkum vöruþróunar ásamt öðrum hagaðilum.
-
Tæknileg vörustjórnun innri viðmótskerfa, með áherslu á þarfir starfsfólks í tengslum við innri aðgerðir og sýnir tæknilegra viðskiptavinaflæða
-
Tæknileg forgangsröðun lítilla og meðalstórra verkefna
-
Miðla tæknilegri sýn á innri viðmótskerfi í þverfaglegu samstarfi innan bankans
-
Skipulagning á þeirri hugbúnaðarþróun sem er í forgangi hverju sinni
-
Gerð kostnaðaráætlana og eftirfylgni í tengslum við aðkeypta þjónustu
-
Samskipti við birgja
-
Faglegt starf í hópi tæknilegra vörustjóra
-
Tæknileg skjölun
-
Háskólapróf er nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði, viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegt
-
Reynsla af smíði og hönnun hugbúnaðar
-
Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
-
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, drifkraftur og skipulagshæfni
-
Þekking og reynsla af notkun Microsoft CRM eða D365 CRM kostur
-
Góð þekking og reynsla af teymisþróun hugbúnaðar, sér í lagi veflausna
-
Áhugi á að fylgjast með nýjungum og þróun í smíði hugbúnaðar
-
Gott vald á rituðu máli, bæði íslensku og ensku