

Tækni- og viðhaldsdeild HSU leitar af öflugum liðsfélaga í sumar
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir jákvæðum, þjónustuliprum og handlagnum starfsmanni til að styrkja öflugt teymi tækni- og viðhaldsdeildar. Hér er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem hefur gaman af fjölbreyttu starfi, lausnamiðaðri hugsun og raunverulegri áhrifamöguleika á daglegt starf HSU.
Starfið felur í sér fjölbreytt og hagnýtt viðhaldsstarf við fasteignir og búnað HSU og er unnið í dagvinnu, auk bakvakta samkvæmt fyrirkomulagi deildarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegt viðhald og almennt húsnæðiseftirlit
- Umhirða, almenn húsvörsluverkefni og lausn á ýmsum tilfallandi málum
- Sendiferðir og önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
- Þátttaka í samstilltu teymi sem tryggir öruggt og gott umhverfi fyrir starfsemi HSU
Menntunar- og hæfniskröfur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Iðnmenntun á sviði byggingaiðnaðar, kostur
- Starfið krefst búsetu á Selfossi eða í nágrenni
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Frábært mötuneyti
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (6)





