Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands
Happdrætti Háskóla Íslands

Tækni- og þjónustudeild HHÍ auglýsir sumarstarf

Leitað er að hressum, jákvæðum og laghentum aðila í tækni- og þjónustudeild HHÍ. Starfið er fjölbreytt og þarf viðkomandi að geta tileinkað sér mismunandi tækni og aðferðir sem henta hverju sinni. Einnig þarf viðkomandi að eiga í miklum samskiptum við rekstrarstaði HHÍ og leysa úr hinum ýmsu málum sem upp koma með útsjónarsemi og jákvæðni að leiðarljósi.

Þjónustudeild HHÍ sér um viðhald á tækjabúnaði HHÍ s.s. sjálfsölum og spilakössum. Einnig koma upp hin ýmsu tilfallandi verkefni sem þarf að leysa.

Verkstæði og þjónustudeild HHÍ er staðsett á Dvergshöfða 2 ásamt skrifstofu HHÍ. Þjónustusvæði HHÍ nær frá Höfuðborgarsvæðinu, til Suðurnesja og Akureyrar. 95% af verkefnum þjónustudeildar eru á Höfuðborgarsvæðinu sjálfu.

Vinnutími 08-16 alla virka daga.

Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Vinsamlegast látið fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Hreint sakavottorð skilyrði.

Menntunar- og hæfniskröfur

Góð tæknikunnátta og færni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni

· Viðhald á vélum Gullnámunar og sjálfssölum Happaþrennu.

· Fara þarf á milli staða til að sinna viðgerðum eftir þörfum.

· Símsvörun bilanasíma

· Svörun tölvupósta

· Ýmis önnur tilfallandi verkefni.

Auglýsing birt14. apríl 2025
Umsóknarfrestur30. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Vöruflutningar
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar