
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. voru stofnaðar 1. september 2025 og munu 1. júlí 2026 taka við rekstri almenningssamgangna á svæðinu, strætisvagna og Borgarlínunnar, þegar hún hefur akstur 2031. Starfsfólk verður um 30-40 manns og velta um 19 milljarðar króna. Fjöldi ferða er um 35.000 á dag, en er áætlað að verði um 100.000 þegar Borgarlínan er komin í fulla virkni árið 2040.
Sviðsstjóri þróunar og skipulags
Vilt þú leggja þitt að mörkum í samfélagsþróun og öflugum almenningssamgöngum?
Við leitum að kraftmiklum sviðsstjórum til að taka þátt í einu mikilvægasta framtíðarverkefni höfuðborgarsvæðisins
Svið þróunar og skipulags er annað af kjarnasviðum félagsins. Sviðið ber ábyrgð á er haldið utan um leiðarkerfi í almenningssamgöngum og þróun þess, útboð og innkaup, þar með talið útboð á öllum akstri félagsins. Þróunarverkefni á sviði upplýsingatækni og stafrænna lausna eru á sviðinu og sömuleiðis þróunarverkefni og framkvæmd innviðaverkefna s.s. uppbygging á hleðsluinnviðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í uppbyggingu félagsins, mótun stefnu og innleiðingu hennar í samstarfi við framkvæmdastjórn.
- Ber ábyrgð á rekstri sviðsins, markmiðum þess, fjárhagsáætlun og árangri í samræmi við stefnu félagsins
- Þróa og innleiða nýtt leiðanet almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með áherslu á þjónustugæði, trúverðugleika, skilvirkni og sjálfbærni.
- Rekstur leiðarkerfis, frávikagreiningar og viðbragð.
- Eftirfylgni með gæðaviðmiðum í samningum við verktaka. Tryggja nauðsynlega fræðslu, þjálfun og aðra þætti.
- Þróa stafrænar lausnir sem styðja markmið félagsins um bætta þjónustu, aukið aðgengi og aukin gæði í almenningssamgöngum.
- Stýra útboðum, innkaupum, þjónustusamningum og rekstri samninga.
- Stuðla að innviðauppbyggingu sem styður þróun leiðarnets og hagkvæmar lausnir í tengslum við útboð félagsins á akstri og annarri þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri og færni í greiningum.
- Leiðtogahæfni og geta til að byggja upp öflugt og árangursmiðað starfsumhverfi.
- Reynsla af stefnumótun og innleiðingu stefnu.
- Reynsla af samningagerð, útboðum og opinberum innkaupum er æskileg.
- Skilningur og áhugi á sjálfbærni, skipulagsmálum, orkuskiptum og nýsköpun í þjónusturekstri.
- Skipulagshæfni, færni og reynsla til að leiða breytingar og aðlaga rekstur að nýjum áskorunum.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Auglýsing birt25. febrúar 2026
Umsóknarfrestur9. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hamraborg 9, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (7)

Viðburða- og verkefnastjóri knattspyrnudeildar Hauka
Knattspyrnufélagið Haukar

Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Heilbrigðisráðuneytið

Forstöðumanneskja Innkaupa
Orkuveitan

Stöðvarstjóri Mývatnssvæðis
Landsvirkjun

Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara
Suðurnesjabær

Sviðsstjóri innri þjónustu
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Sviðsstjóri þjónustu og sölu
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.