
Sviðsstjóri þjónustu og sölu
Vilt þú leggja þitt að mörkum í samfélagsþróun og öflugum almenningssamgöngum?
Við leitum að kraftmiklum sviðsstjórum til að taka þátt í einu mikilvægasta framtíðarverkefni höfuðborgarsvæðisins
Svið þjónustu og sölu er annað af kjarnasviðum félagsins. Það heldur utan um daglegan rekstur þess. Þar er þjónustuver, móttaka og stjórnstöð sem ber ábyrgð á upplýsingamiðlun til viðskiptavina og flotastýringu Sviðsstjóri bera ábyrgð á sölu- og markaðsstarfi, heimasíðu og annarra miðla þar sem upplýsingum er miðlað til viðskiptavina.
Við leitum að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn, sterka leiðtogahæfni og færni til að vinna með hagaðilum við mótun og þróun almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir drífandi og framsýnan stjórnanda til að taka þátt í að stýra einu stærsta breytingarverkefni landsins, byggja upp rekstur Borgarlínu og bæta almenningssamgöngur fyrir þúsundir daglegra notenda.
- Virk þátttaka í uppbyggingu félagsins, mótun stefnu og innleiðingu hennar í samstarfi við framkvæmdastjórn.
- Vinnur að því að efla notkun á almenningssamgöngum og vitund almennings um þjónustu og gildi hennar.
- Ábyrgð á rekstri sviðsins, markmiðum þess, fjárhagsáætlun og árangri í samræmi við stefnu félagsins.
- Ábyrgð á þjónustu, þjónustugæðum og upplifun notenda.
- Yfirumsjón með þjónustuveri, móttöku, stjórnstöð og starfi þjónustufulltrúa á vettvangi.
- Stuðlar að auknu öryggi og trausti notenda með sýnileika þjónustufulltrúa í vögnum og markvissu gæðaeftirliti.
- Leiðir upplýsingamiðlun á helstu miðlum félagsins og leiðir uppbyggingu þeirra.
- Markaðs- og sölumál gagnvart viðskiptavinum, fyrirtækjum, endursöluaðilum og einstaklingum.
- Ábyrgð á stýringu og viðbragði við öllum frávikum sem upp koma í daglegum rekstri.
- Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri og færni í greiningum.
- Leiðtogahæfni sem styður öflugt og árangursmiðað starfsumhverfi.
- Reynsla af stefnumótun og innleiðingu stefnu.
- Reynsla af markaðsmálum, skilningur á ólíkum miðlum og tækifærum sem felast í þróun þeirra.
- Þekking á ímyndauppbyggingu og þróun.
- Reynsla eða innsýn í þjónustustýringu og árangursmælingar..
- Stafræn færni og skilningur á tækifærum stafrænnar þróunar í tengslum við sölu, markaðssetningu og miðlun.
- Reynsla af sölustýringu er æskileg.
- Skipulagshæfni, færni og reynsla til að leiða breytingar og aðlaga rekstur að nýjum áskorunum.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Íslenska
Enska




