
Sviðsstjóri innri þjónustu
Vilt þú leggja þitt að mörkum í samfélagsþróun og öflugum almenningssamgöngum?
Við leitum að kraftmiklum sviðsstjórum til að taka þátt í einu mikilvægasta framtíðarverkefni höfuðborgarsvæðisins
Svið innri þjónustu er eina stoðsvið félagsins. Sviðið ber ábyrgð á fjármálum- og rekstri þ,m.t. áætlanagerð, uppgjörum og upplýsingum tengdum fjármálastýringu, rekstur húsnæðis og annarra þjónustusamninga, Auk þess ber sviðið ábyrgð á mannauðsmálum, notendaþjónustu á sviði upplýsingatækni, ímyndamál og önnur verkefni tengd stoðþjónustu.
Við leitum að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn, sterka leiðtogahæfni og færni til að vinna með hagaðilum við mótun og þróun almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til framtíðar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir drífandi og framsýnan stjórnanda til að taka þátt í að stýra einu stærsta breytingarverkefni landsins, byggja upp rekstur Borgarlínu og bæta almenningssamgöngur fyrir þúsundir daglegra notenda.
- Þátttaka í uppbyggingu félagsins, mótun stefnu og innleiðingu hennar í samstarfi við framkvæmdastjórn.
- Ábyrgð á rekstri, fjármálastýringu, áætlunum, uppgjörum, eftirfylgni, skýrslugerð til stjórnar og stjórnenda. markmiðum þess, fjárhagsáætlun og árangri í samræmi við stefnu félagsins.
- Fagleg nálgun mannauðsmála í innra starfi félagsins og ábyrgð á stefnu og ferlum á sviði mannauðsmála.
- Notendaþjónusta í upplýsingatæknimálum.þ.m.t.
- Önnur verkefni sem snúa að innri þjónustu fyrirtækisins.
- Árangursrík reynsla af stýringu fjármála, stjórnun og rekstri.
- Leiðtogahæfni og geta til að byggja upp öflugt og árangursmiðað starfsumhverfi.
- Reynsla af stefnumótun og innleiðingu stefnu.
- Reynsla og skilningur á rekstrarstýringu, áætlanagerð og uppgjörum.
- Reynsla af innkaupum og samningagerð.
- Innsýn í viðfangsefni mannauðsmála.
- Skilningur á notendaþjónustu í upplýsingatækni.
- Skipulagshæfni, færni og reynsla til að leiða breytingar og aðlaga rekstur að nýjum áskorunum.
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Íslenska
Enska




