Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Sviðsstjóri hjúkrunar á Reykjalundi

Laus er til umsóknar 100% staða sviðsstjóra hjúkrunar á Reykjalundi.

Sviðsstjóri hjúkrunar gegnir leiðandi hlutverki í sínum faghóp um fagleg málefni, framþróun og endurmenntun. Hann leiðir skipulagningu starfa innan meðferðarteyma og þvert á meðferðarteymi þar sem það á við.

Sviðsstjóri hjúkrunar situr í stýrihóp stjórnenda Reykjalundar.

Staðan er laus strax eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Á Reykjalundi starfar hópur framúrskarandi hjúkrunarfræðinga í átta þverfaglegum meðferðarteymum sem skiptast á tvö meðferðarsvið. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða nálgun og heildræna meðferð.

Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, íþróttafræðingar, talmeinafræðingar, sjúkraliðar og læknar.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug. Vinnuvikan telur 36 stundir.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Víðtæk reynsla af stjórnun er æskileg.
  • Frumkvæði, leiðtogahæfni og metnaður í starfi.
  • Þekking, áhugi og reynsla af þverfaglegu teymisstarfi.
  • Kostur að hafa framhaldsmenntun í klínískri hjúkrun eða stjórnun.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Ólöf Árnadóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar í gegnum netfangið [email protected] og Guðbjörg Gunnardóttir mannauðsstjóri í gegnum netfangið [email protected]

Auglýsing birt7. maí 2025
Umsóknarfrestur21. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Metnaður
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar