

Sviðsstjóri
Í starfinu felst að vinna náið með leikstjórum, leikhópum, leikmynda- og búningahönnuðum og alls konar listafólki sem kemur að því að skapa sviðslistir í húsinu.
Starfið hentar vel laghentu fólki sem er óhrætt við að læra nýja hluti. Það er kostur að hafa grunnþekkingu á tæknibúnaði leikhúsa, eða menntun tengda sviðslistum. Nauðsynlegt er að kunna á verkfæri því í vinnunni felst stöku sinnum smíðavinna og málun.
Sviðsstjóri ráðleggur leikhópum með leikmyndagerð og aðstoðar þau við skipulagningu og uppröðun á leikmunum. Hann tryggir að aðstaða þeirra baksviðs sé viðunandi.
Mikilvægast í starfinu er að kunna að vinna sjálfstætt og hafa ríka þjónustulund.
Ráðgjöf: Sviðsstjóri ráðleggur og aðstoðar eftir megni, samkvæmt samningum milli Tjarnarbíó og leikhópa, við tækni og leikmyndagerð.
Viðhald: Sviðsstjóri ásamt leikhússtjóra fylgist með viðhaldi á öllu húsinu. Minniháttar viðgerðir eða uppfærslur á aðstöðu leikhópa falla í hans verkahring.
Kynning: Sviðsstjóri vísar leikhópum um húsið og kynnir fyrir þeim húsreglur. Hann fylgist með að aðstaða þeirra sé viðunandi, t.d. þrif.
Málun: Tvisvar á ári málar sviðsstjóri sviðið, og aðra staði í húsinu eftir þörfum.
Verkefni sviðsstjóra eru fjölhæf og ýmisskonar enda felur starfið í sér bæði þjónustu við leikhópa með ýmisskonar sviðsverk og húsvörslu í Tjarnarbíó.
Menntun í sviðslistum, listum, og iðngreinum er kostur.
Boðsmiðar á sýningar. Sveigjanlegir vinnutímar.
Íslenska
Enska
