
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Sumarstörf við sundlaugar Borgarbyggðar
- Starfsmaður óskast við sundlaugina í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu og unnið þriðja hver helgi.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina á Kleppjárnsreykjum frá 1. júní til 14. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina á Varmalandi frá 1. júní til 14. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
Hreint sakavottorð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Öryggisgæsla og eftirlit.
Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini.
Þrif.
Auglýsing birt7. mars 2022
Umsóknarfrestur27. mars 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)


