
Þjóðminjasafn Íslands
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun í eigu íslenska ríkisins. Því er ætlað að vera miðstöð þjóðminjavörslu og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar frá upphafi til vorra daga og stuðla að því að sem flestir geti haft gagn og gaman af sögu og minjum lands og þjóðar. Meginhluti safnhússins hýsir grunnsýningu Þjóðminjasafnsins: Þjóð verður til - menning og samfélag í 1200 ár.

Sumarstörf þjónustufulltrúi á Þjóðminjasafni Íslands
Þjóðminjasafn Íslands óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk í stöðu þjónustufulltrúa með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Um er að ræða vaktavinnu og er starfshlutfall 76%. Hlutverk starfsfólks er að taka vel á móti gestum, fræða og veita góða upplifun og framúrskarandi þjónustu í móttöku, á sýningum, í safnbúð og á kaffihúsi safnsins. Allir starfsmenn sem sinna starfi þjónustufulltrúa fá úthlutuðum einkennisfatnaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við gesti safnsins í móttöku, sýningarsölum, á kaffihúsi og í safnbúð
- Framúrskarandi gestgjafi
- Upplýsingagjöf til safngesta
- Leiðsögn á íslensku og ensku
- Afgreiða og þjónusta gesti á kaffihúsi safnsins
- Afgreiða og þjónusta gesti í safnbúð
- Aðstoða við öryggisgæslu í sýningarsölum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund, sjálfstæð vinnubrögð, dugnaður og snyrtimennska eru skilyrði
- Hæfni til að koma fram og fara með leiðsagnir skilyrði
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og eiga auðvelt með að miðla upplýsingum er skilyrði
- Hefur ánægju af því að vinna með fólki og þjónusta fólk
- Tala og rita íslensku og ensku er skilyrði
- Þekking á fleiri tungumálum mikill kostur
- Góð og farsæl reynsla af þjónustustörfum mikill kostur
- Áhugi á menningararfi og listum er kostur
- 20 ára eða eldri
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurgata 41, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Sjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Byko

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Öryggisvörður óskast á næturvaktir í Keflavík
Öryggismiðstöðin

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Hlutastarf í Gryfjunni
Gryfjan

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North