Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið

Sumarstörf með fötluðu fólki á Egilsstöðum

Um er að ræða vaktavinnu og í boði eru hlutastörf eða allt að 100% störf, ráðningartíminn er frá 15.maí eða eftir nánari samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuþroskaþjálfi búsetuþjónustu.

Í búsetuþjónustu er veitt aðstoð inn á heimilum fatlaðs fólks, við allar athafnir daglegs lífs s.s. heimilisstörf, persónulega aðstoð, félagslega þátttöku og tómstundir.

Leitað er að áhugasömu fólki með góða samskiptahæfileika og almenna kunnáttu í heimilisstörfum og umönnun. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.

Um er að ræða skemmtileg og fjölbreytt störf sem henta ungmennum 18 ára og eldri svo og eldra fólki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð og stuðningur til þjónustunotenda til að lifa innihaldsríku lífi og til þátttöku í samfélaginu. Markmiðið er að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þjónustunotenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta æskileg.
  • Ökuréttindi eru æskileg.
  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi væri kostur.
  • Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
  • Fæði á vinnutíma.
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur1. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÍslenskukunnáttaPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar