
Norðurál
Norðurál, sem rekur álver á Grundartanga, var valið Umhverfisfyrirtæki ársins 2022 af Samtökum atvinnulífsins. Framþróun grænnar álframleiðslu mun hafa raunveruleg áhrif á útblástur gróðurhúslofttegunda á heimsvísu. Íslenski áliðnaðurinn er ein stærsta útflutningsgrein landsins og ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs.
Álið okkar, Natur-Al, skilur eftir sig eitt minnsta kolefnisspor í heimi. Þegar litið er á ferlið í heild, frá vinnslu hráefna til afhendingar fullunninnar vöru, nemur kolefnisspor áls frá Norðuráli einungis um fjórðung af heimsmeðaltalinu. Við stefnum að því að verða fyrsta álver í heiminum sem framleiðir kolefnishlutlaust ál.
Hjá Norðuráli leggjum við áherslu á virðingu fyrir mannréttindum, samfélagi og umhverfi. Öryggi, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í fyrirrúmi og lögð er áhersla á jafnan rétt starfsfólks til starfsframa, launa og réttinda.
Hjá Norðuráli starfa um 600 fastráðin, þar af 350 í vaktavinnu, 150 sérfræðingar með fjölbreytta menntun og 100 í iðnaðarstörfum. Til viðbótar eru um 150 í afleysingum.
Norðurál er ASI vottað sem staðfestir að fyrirtækið stenst ítrustu kröfur um samfélagslega ábyrgð, heiðarlega viðskiptahætti, umhverfisvænt hráefni og framleiðslu. Gæðastjórnunarkerfi Norðuráls er vottað samkvæmt alþjóðlega ISO 9001 staðlinum og umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins eru vottuð samkvæmt ISO 14001 og ISO 45001 stöðlum. Norðurál er jafnlaunavottað fyrirtæki og er handhafi gullmerkis PWC.

Sumarstörf í mötuneyti og ræstingum
Við leitum að hressu og duglegu fólki í sumarstörf bæði í mötuneytið og ræstingarteymið okkar á Grundartanga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi í maí. Störfin eru bæði í dagvinnu og á 8 tíma dag- og kvöldvöktum. Við leggjum áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda og viljum fá þig með okkur í lið!
Starfsfólki bjóðast ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Sjálfstæð og örugg vinnubrögð
Þjónustulund og góð samskiptahæfni
Vandvirkni
Öryggisvitund
Snyrtimennska og stundvísi
Auglýsing stofnuð18. mars 2023
UmsóknarfresturEnginn
Starfstegund
Staðsetning
Grundartangi álver 133197, 301 Akranes
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Yfirkokkur/matráður Tennishallarinnar
Tennishöllin Kópavogi Kópavogur Hlutastarf (+1)

Afleysingastarf í mötuneytum
Skólamatur Reykjanesbær Fullt starf

Cleaning Technician
Greenkey ehf Reykjavík Fullt starf

Sumarstörf 2023 - Laugarás
Hrafnista Reykjavík Sumarstarf

Matvælaframleiðsla/ Food production
Álfasaga ehf Reykjavík Fullt starf

Sumarstarf 2023 - Matreiðslumaður/nemi í mötuneyti Isavia
Isavia Reykjanesbær 2. apríl Sumarstarf

Matreiðslumaður / Chefs
Zenato La Trattoria (+1) Hlutastarf (+1)

Starfsmenn í eldhús / Kitchen staff
Jaðar Bistro Hlutastarf (+2)

Mötuneyti leikskólans Austurborg
Skólamatur Reykjavík Hlutastarf

Matreiðslumaður/aðstoð í elhús/chef/assistant
Sæta Svínið Reykjavík Fullt starf

Commis Chef
SSP Iceland Reykjanesbær 22. apríl Hlutastarf (+2)

Matreiðslumaður/aðstoð í elhús/chef/assistant
Fjallkonan - krá & kræsingar Reykjavík Fullt starf
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.