

Sumarstörf hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs
Eftirfarandi stöður við sumarstörf fyrir námsfólk eru lausar til umsóknar hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs.
Starfsmaður við almenna þjónustu
Starfað er í vinnuhóp sem er undir stjórn flokkstjóra. Helstu verkefni vinnuhópa eru viðhald og umhirða gatna og stíga, hreinsun og fegrun bæjarins, hreinsun niðurfalla, ýmis málningarvinna og þökulagnir en auk þeirra er ýmis þjónusta við bæjarstofnanir.
Starfsmaður við garðyrkju
Starfað er í vinnuhóp undir stjórn flokkstjóra. Helstu verkefni vinnuhópa eru umhirða gróðurs, beðahreinsun ásamt hreinsun og umhirðu stofnanalóða en auk þeirra er ýmis þjónusta við bæjarstofnanir.
Starfsmaður við skógrækt
Starfað er í vinnuhóp undir stjórn flokkstjóra. Helstu verkefni vinnuhópanna eru skógræktar og uppgræðsluverkefni, í landi Kópavogs
- Starfsfólk skal fara vel með tæki og verkfæri í hans umsjón, þrif og annað viðhald skal framkvæmt reglulega. Sérstaklega skal þess gætt að öryggisatriði séu ávallt í fullkomnu lagi, bæði hvað varðar tækjabúnað og útbúnað (persónuhlífar, endurskinsfatnað og fleira).
- Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri (f. 2007 eða fyrr).
- Þessi störf eru ætluð námsfólki.









































