

Sumarstörf hjá Landi og skógi
Land og skógur óskar eftir starfsfólki í sumarstörf við rannsóknir og vöktun. Um er að ræða fullt starf.
Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu hlutverki við að rannsaka og bæta þessar mikilvægu auðlindir Íslands og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra.
Land og skógur sinnir vernd og endurheimt vistkerfa og ræktun skóga og starfar samkvæmt lögum um Land og skóg nr. 66/2023.
Um er að ræða stöður aðstoðarfólks við rannsóknir og vöktun hjá Landi og skógi. Sumarstörfin felast í vinnu við vistfræðirannsóknir stofnunarinnar, m.a. vettvangsvinnu tengdri vöktun á ástandi lands, rannsóknum á þurrlendi, votlendi og skóglendi, sem nýtast bæði til aukinnar þekkingar, bættrar ákvarðanatöku og eru hluti af loftlagsbókhaldi Íslands. Starfinu geta fylgt talsverð ferðalög víða um land þar sem fjarvera frá starfsstöð getur verið löng og samfelld, gert er ráð fyrir mikilli útivinnu og löngum vinnudögum. Starfsstöð sumarstarfsfólks fer eftir þeim verkefnum sem fólk er ráðið í en meðal annars er gert ráð fyrir að ráða fólk með starfsstöð á Norðurlandi, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
-
Stundvísi, ábyrgð og þjónustulund eru skilyrði.
-
Bílpróf á beinskiptan bíl er æskilegt. Sömuleiðis er reynsla af akstri við erfiðar aðstæður, þ.e. utan þjóðvegs, á torfærum slóðum, á breyttum bílum o.s.frv. kostur.
-
Umsækjendur þurfa að hafa lokið a.m.k. fyrsta ári í háskólanámi á sviði náttúruvísinda eða skyldra greina, bakgrunnur í plöntugreiningum, jarðvegsfræði og skógfræði er kostur.
-
Hæfni til að vinna í hópi og undir álagi er skilyrði.
-
Reynsla af útivist er kostur.



