
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Sumarstörf hjá BL
Starfsfólk BL leitar að ráða til sín sumarafleysingarfólk sem hefur:
- Ánægju af því að veita góða þjónustu
- Löngun til að skara fram úr
- Nægjanlegt sjálfstæði til að grípa inn í og stýra málum í réttan farveg
- Ánægju af samvinnu og mannlegum samskiptum
Störf sem ráðið verður í:
- Bókhald
- Sölu á nýjum bílum
- Akstur í skutluþjónustu
- Lagerstörf og útkeyrsla pantana
Starfsfólk okkar lofar skemmtilegu og hvetjandi vinnuumhverfi ásamt góðri vinnuaðstöðu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fagleg framkoma
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Jákvæðni og heiðarleiki
- Tölvulæsi
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð
- Framúrskarandi þjónustulund
- Ökuréttindi
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kauptún 1, 210 Garðabær
Hestháls 6-8
Vesturvör 30A, 200 Kópavogur
Sævarhöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiTeymisvinnaÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Söluráðgjafar í hlutastarfi óskast í verslanir Rammagerðarinnar.
Rammagerðin

Starfsmaður í netpantanir og heildsöluafgreiðslu
Beautybox

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Sölufulltrúi/Starfsmaður fyrir heildverslun/verslun fullt starf
Gullskógar

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Product Manager
Arctic Adventures

Helgar- og hlutastarf í verslun
BAUHAUS slhf.

Sölufulltrúi í verslun - Sumarstarf
Smiðjan Fönix ehf.

Söluráðgjafi í stóma- og þvagleggjaþjónustu
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Fullt starf hjá Gæludýr.is á AKUREYRI
Waterfront ehf

Sölufulltrúi - fullt starf
Freyja

Eftirminnilegt sumar í vændum á lager
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.