

Umsóknir fyrir ungmenni með fötlun
Starfs – og frístundaklúbburinn í Tröð er fyrir ungmenni með fötlun á aldrinum 17 til 25 ára og er starfsemi klúbbsins sniðin að þörfum og getu hvers eins. Tröð er með aðsetur við Meltröð 6.
Í verkefnum í Tröð er lögð áhersla á hefðbundna sumarvinnu hjá Kópavogsbæ í samvinnu við ungmennin, sem lítur meðal annars að kynningu á almennum vinnumarkaði.
Einnig er boðið uppá faglegt og skemmtilegt frítímastarf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.
Nánari upplýsingar veitir Amanda K. Ólafsdóttir deildarstjóri frístundadeildar, sími 441 0000.
Starfstímabil er frá 2. júní – 24. júlí.
Vinaskjól í Hafnarfirði
Vinaskjól er starfs – og frístundatilboð fatlaðra framhaldsskólanema á aldrinum 16 – 20 ára. Starfsemi Vinaskjóls fer fram í Húsinu við Suðurgötu 14 í Hafnarfirði.
Markmið Vinaskjóls er að styðja þjónustunotendur til sjálfstæðis, efla vald – og sjálfsákvörðunarrétt þeirra, auka félagslega færni og almenna þátttöku.
Til upplýsinga:
- Úthlutun á sumarstarfs – og frístundavikum í Vinaskjóli er háð mati frá þjónusturáðgjafa ungmennis á Ráðgjafa – og þjónustudeild fatlaðra á Velferðarsviði Kópavogsbæjar.
- Ef umsókn á við um önnur starfs – og frístundatengd úrræði, vinsamlega skráið í athugasemd, nafn starfsstöðvar, vikufjölda og starfstímabil þegar sótt er um starfið.
- Ávallt skal einnig sækja um starfs – og frístundavikur til þeirra aðila sem ungmenni mun starfa hjá.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Magnúsdóttir forstöðumaður, sími 664 5766





