

Sumarstörf 2026
Við óskum eftir framtakssömum og metnaðarfullum háskólanemum til að starfa með okkur í sumar. Við bjóðum skemmtilega og krefjandi vinnu við fjölbreytt og spennandi verkefni. Sumarstarf hjá Verkís er góður undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna við fjölbreytt störf í verkfræði og tengdum greinum í framtíðinni. Sumarstarfsfólk okkar fær leiðbeinanda (mentor) sem er því innanhandar í verkefnum sumarsins.
Verkís er öflugt og framsækið fyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Við leggjum áherslu á sterka liðsheild sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu við að takast á við krefjandi verkefni. Við tryggjum starfsfólki góðan og eftirsóknarverðan vinnustað þar sem hver og einn færa að nýta hæfileika sína og þekkingu sem best.
Sumarstörf eru í boði í höfuðstöðvum Verkís í Ofanleiti í Reykjavík og í öllum útibúum Verkís á landsbyggðinni.
Við tökum á móti umsóknum til og með 2. mars 2026 en við hvetjum þig til að sækja um tímanlega þar sem umsóknir eru skoðaðar jafnóðum og þær berast.
Mikilvægt er að láta ferilskrá og námsferilsyfirlit fylgja með umsókninni. Öllum umsóknum verður svarað.
Gildi Verkís eru HEILINDI, METNAÐUR og FRUMKVÆÐI, við leggjum áherslu á sjálfstæði í vinnubrögðum, jákvæðni og samskiptahæfni starfsfólks.
Íslenska
Enska










