
SORPA bs.
SORPA er leiðandi og ábyrgur þátttakandi í hringrásarhagkerfinu. Alla daga vinnum við statt og stöðugt að því að gera góða hluti fyrir umhverfið, draga úr úrgangi og stuðla að endurvinnslu og endurnýtingu. Hjá okkur starfar fjölbreyttur og samheldin hópur, 170 einstaklinga á tólf starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Við leggjum mikið upp úr fjölskylduvænu vinnuumhverfi, sterkri liðsheild og viljum hafa gaman í vinnunni. Komdu og vertu með okkur í liði í sumar!

Sumarstarfsmaður í GAJA, Gas- og jarðgerðarstöð SORPU
Við leitum að öflugum einstaklingi í teymið okkar í GAJA, gas- og jarðgerðarstöð SORPU sem hefur áhuga á að taka þátt í og stuðla að aukinni endurvinnslu og minnkun loftlagsáhrifa.
Helstu verkefni eru að taka á móti viðskiptavinum/flutningsaðilum í móttöku GAJA, sjá um forvinnslu og blöndun vinnsluefnis, mokstur moltu ásamt því að halda vinnslusvæði, gönguleiðum og öðrum rýmum GAJA þrifarlegum. Vinnan fer að miklu leiti fram á stærri vinnuvélum, svo sem hjólaskóflu og dráttarvél.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Hafa bílpróf, vinnuvéla/dráttarvélaréttindi og/eða réttindi fyrir stærri vinnuvélar er kostur
- Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Góð almenn tölvufærni
- Stundvísi, samviskusemi og metnaður
- Góð öryggisvitund og teymishugsun
- Íslensku- og/eða enskukunnátta
- Áhugi og þekking á umhverfismálum og endurvinnslu
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Álfsnes, 162 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaÁreiðanleikiFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiJákvæðniLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Móttaka á þjónustuverkstæði - Bílaumboð Suzuki og Vatt
Suzuki og Vatt - Bílaumboð

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Næturvaktir í Lyfjavali Hæðasmára
Lyfjaval

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Starfsmaður í árstíðar- og heimilisdeild - BYKO Selfoss
Byko

Reykjanesbær - tímavinna
Vínbúðin

Hveragerði - starfsmaður
Vínbúðin

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Afgreiðslustarf - eingöngu 18 ára og eldri koma til greina
Björnsbakarí