
Sumarstarfsmaður á Sandgerðishöfn
Sumarstarf við Sandgerðishöfn – spennandi og fjölbreytt starf í hjarta hafnarstarfsemi
Sandgerðishöfn óskar eftir jákvæðum og ábyrgum sumarstarfsmanni til starfa frá byrjun maí til loka ágúst 2026. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu í lifandi og vinnuvænu umhverfi þar sem enginn dagur er eins.
Starfsmaðurinn sinnir hafnarvörslu, vigtun sjávarafla, er í samskiptum við sjómenn og samstarfsaðila, hafnarvernd ásamt almennum viðhalds- og þjónustuverkefnum hafnarinnar og öðrum verkefnum sem tilheyra höfninni.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi fari á vegum hafnarinnar á námskeið til löggildingar sem vigtarmaður, ef viðkomandi hefur þau réttindi ekki fyrir.
Hæfniskröfur:
- Löggilding vigtarmanns eða vilji til að sitja tveggja daga námskeið til slíkrar löggildingar
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri (kröfur HMS um löggildingu vigtarmanns)
- Viðkomandi þarf að vera ábyrgur, lipur í samskiptum, stundvís og hafa góða þjónustulund
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Almenn tölvukunnátta
- Íslensku- og enskukunnátta
Öll helsta þjónusta er staðsett við höfnina, s.s. vélsmiðja, verslun með útgerðarvörur á línu- og netagerð og verkstæði sem sérhæfir sig í viðgerðum og breytingum á smærri plastbátum auk fjölda annarra. Í Sandgerði er staðsett fullkomnasta björgunarskip SVFÍ, Hannes Þ. Hafsteinn. Þessi aðbúnaður hefur skipað Sandgerðishöfn í röð mestu fiskihafna landsins.
Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2026.
Starfsferilskrá fylgir umsókn ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðs- og kjaradeild, [email protected]
Íslenska
Enska










