Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarfsmaður á heimili fatlaðs fólks

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Vera þjónustunotendum góð fyrirmynd.
  • Stuðla að auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
  • Almennt heimilishald.
  • Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
  • Fjölbreytt verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tveggja ára nám í framhaldsskóla og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
  • Bílpróf er kostur.
  • Framtakssemi, frumkvæði og jákvætt viðhorf í starfi.
  • Geta til að starfa undir álagi.
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
  • Starfað er í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
Auglýsing stofnuð23. febrúar 2024
Umsóknarfrestur10. mars 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaByrjandi
Staðsetning
Fannborg 6, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar