
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Sumarstarfsfólk í garðyrkjudeild
Um er að ræða sumarstörf í grænan flokk garðyrkjudeildar Akraneskaupstaðar, sem garðyrkjustjóri leiðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við ýmis garðyrkjustörf, almenna umhirðu og framkvæmdir á opnum svæðum í bæjarlandinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á garðyrkju og umhverfismálum.
- Góð samskiptahæfni og skipulagsfærni.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Starfið miðast við 18 - 20 ára +.
Auglýsing birt27. febrúar 2024
Umsóknarfrestur18. mars 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Laugarbraut 6, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)

