Byko
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land. Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi. BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO. Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði. Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð. Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi. BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins. Við bjóðum starfsfólki okkar upp á: • Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og foreldraorlofi • Samgöngustyrk • Velferðarstyrk • Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar • Líkamsræktartyrk • Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum • Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi • Niðurgreiðsla á hádegismat • Afsláttur á vörum í verslun • Árshátíð og haustfögnuð • Jólagjöf og páskagjöf • Gjafir vegan starfsaldurs • Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína. Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.
Byko

Sumarstarf - Vöruhús BYKO

English below

.......................................

Við hjá BYKO erum að leita að öflugu starfsfólki (18 ára og eldri) til liðs við okkur í sumar í vöruhúsi BYKO. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Yfir sumartímann er unnið skv. vaktaskipulagi til skiptis frá kl. 07:00 - 15:00 og frá kl. 15:00-23:00

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lyftarapróf, skilyrði
  • Reynslu af vinnu á lyftara með 4,5T lyftigetu, kostur
  • Reynslu af vinnu á skotbómulyftra, kostur
  • Stundvísi
  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn afgreiðslu- og lagerstörf
  • Móttaka og frágangur á vörum
  • Almenn þjónusta til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi störf

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum

Allar nánari upplýsingar veitir Jón Ægir Baldursson, rekstrarstjóri (jonb@byko.is).

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði

........................................................

We at BYKO are looking for employees (18 years and older) to join us in the BYKO warehouse located in Kjalarvogur. If you are a progressive and professional employee with joy in the forefront then we are looking for you.

During the summer time, work is carried out according to alternating shifts from 07:00 - 15:00 and from 15:00-23:00

Job description

  • General handling and warehouse work
  • Receiving and putting away goods
  • Customer service
  • Other misc. Work

Skills

  1. Must have a forklift driver license, forklifts are 4,5T lifting capacity
  2. Experience with telescopic handler preferred
  3. Positive attitude & punctuality
  4. Drivers license required

We welcome applications from all interested parties regardless of sex.

Applications will be processed immediately.

All further information is provided by Jón Ægir Baldursson, Operations Manager (jonb@byko.is)

BYKO has set itself the vision of creating the best overall customer experience in construction and beautification of the home. In that work, we are guided by our values; professionalism, progressiveness and joy

Auglýsing stofnuð3. mars 2023
UmsóknarfresturEnginn
Starfstegund
Staðsetning
Kjalarvogur 16, 104 Reykjavík
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.