

Sumarstarf Timburafgreiðsla - BYKO Selfossi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi í sumarstarf í timburskemmu okkar á Selfossi.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er ýmist 08:00 – 16:00 og 10:00 – 18:00.
Við leitum að starfsmanni með:
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Lyftarapróf, kostur
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Bílpróf, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn afgreiðslu og lagerstörf
- Móttaka og frágangur á vörum
- Almenn þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar en unnið er úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Valgeir Ólafur Flosason verslunarstjóri [email protected] og Margrét Hannesdóttir skrifstofustjóri [email protected].
Íslenska










