
Bílaumboðið Una
Bílaumboðið Una er umboðs- og þjónustuaðili fyrir XPENG á Íslandi. Una er systurfyrirtæki Bílaumboðsins Öskju og 100% í eigu Vekru sem er móðurfyrirtæki beggja fyrirtækja. XPENG var stofnað árið 2014 og framleiðir eingöngu 100% rafbíla. Vörulína XPENG í Evrópu samanstendur af þremur gerðum, G6, G9 og P7, en einnig eru framleiddar fleiri gerðir fyrir heimamarkað. Höfuðstöðvar XPENG í Evrópu eru í Amsterdam.

Sumarstarf - Söluráðgjafi hjá Bílaumboðinu Unu
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi aðila til að sinna starfi söluráðgjafa hjá Bílaumboðinu Unu í sumar. Una er bílaumboð sem selur og þjónustar bíla frá kínverska bílaframleiðandanum XPENG. Við bjóðum einstakt tækifæri til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi starfsumhverfi.
Una er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Söluráðgjöf
- Móttaka viðskiptavina, símsvörun og svörun tölvuskilaboða
- Framsetning bíla, verðmerkinga og annars efnis á sýningarsvæði
- Úthringiverkefni
- Tilboðsgerð, eftirfylgni og samningagerð
- Þátttaka í verkefnum sem tengjast sölu og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölustörfum kostur
- Frumkvæði í starfi
- Rík þjónustulund og samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæð vinnubrögð og vilji til að ná árangri í starfi
- Fagmennska og jákvæðni
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
- Gild ökuréttindi
Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vínlandsleið 6-8, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Áfyllingar og framsetning á vörum
Retail Support Ísland ehf.

Vörustjóri - sjúkraþjálfunar- og hjálpartækja
Fastus

Sölufulltrúi – framtíðarstarf og sumarstarf
Gæðabakstur

Vörustjóri - lækningatæki
Fastus

Sölumaður - Sumarstarf og framtíðarstarf
Ó.Johnson & Kaaber

Tesla Customer Experience Specialist (Part-time) - Reykjavik
Tesla

Sölumaður í verslun
Hegas ehf.

Sölumaður í jeppabúð
Arctic Trucks Ísland ehf.

Helgarstarf í timbursölu / Weekend job in timber department
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Sölumaður / Afgreiðsla / Vogue Akureyri
Vogue

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu