Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Sumarstarf - Sértæk þjónusta

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir að ráða jákvæða, hressa og drífandi starfsmenn í starf með einstaklingi sem þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Viðkomandi notar hjólastól og er með eigin bíl með hjólastólalyftu og því er mikilvægt að starfsfólk sé með ökuréttindi.

Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, húmor og framúrskarandi þjónustu. Í boði er skemmtilegt og fjölbreytt starf.

Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, en með möguleika á hlutastarfi í haust. Starfshlutfall er 60% -100% og er unnið í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Gott ef viðkomandi getur hafið störf í byrjun maí.

Helstu verkefni og ábyrgð

·  Veita stuðning við athafnir daglegs lífs, s.s. að klæðast, matast, fara í búð og önnur       tilfallandi verkefni.

·  Að styðja einstaklinginn til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.

·  Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan hans, aðstoða hann varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni

·  Aðstoða með öll almenn heimilisstörf

·  Vera félagslegur stuðningur

·  Samvinna við yfirmenn, aðstandendur og annað starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Menntun sem nýtist í starfi td. sjúkraliði, eða reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki á heimilum þeirra nauðsynleg

· Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

· Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

· Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað

·  Ökuréttindi skilyrði

Fríðindi í starfi

Starfsmenn fá frítt í sundlaugar bæjarins 

Auglýsing birt26. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hörðukór 10, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar