Icelandair
Icelandair
Icelandair

Sumarstarf - Liðsfélagar í þjónustuver

Icelandair leitar að góðum liðsfélögum í þjónustuver yfir sumartímann með mögulegu áframhaldi á hlutastarfi yfir veturinn. Um er að ræða störf í dag- og vaktavinnu.

Í þjónustuveri starfar öflugur, fjölbreyttur og samheldinn hópur að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu í síbreytilegum heimi flugs og ferðalaga.

Fjölhæfir starfskraftar sem búa yfir frumkvæði og framúrskarandi samskiptahæfni myndu passa vel inn í teymið.

Ábyrgðarsvið:

  • Sala og þjónusta í síma, tölvupósti, netspjalli og á samfélagsmiðlum.
  • Ráðgjöf og upplýsingagjöf vegna ferðalaga.
  • Aðstoð við viðskiptavini.

Hæfni og menntun:

  • Menntun sem nýtist í starfi, á sviði ferðamála er mikill kostur.
  • Stúdentspróf og/eða framhaldsskólapróf/ iðnmenntun.
  • Góð skrifleg og munnleg íslenskukunnátta og enskukunnátta nauðsynleg
  • Önnur tungumálakunnátta er mikill kostur, til dæmis þýska, franska, danska, sænska eða norska.
  • Framúrskarandi þjónustulund.
  • Útsjónarsemi sem nýtist við að leysa vandamál.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, þarf jafnframt að geta verið sterkur liðsfélagi í teymi.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Kunnátta á Amadeus, Davinci og/eða Altéa sem og Salesforce er kostur.

Einungis kemur til greina að ráða starfsfólk sem eru staðsettir á Íslandi.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars, 2024. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Auglýsing stofnuð23. febrúar 2024
Umsóknarfrestur10. mars 2024
Staðsetning
Reykjavíkurflugvöllur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AmadeusPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar