Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf í Sundlaug Kópavogs - Kona

Laus eru til umsóknar sumarstörf fyrir konur í Sundlaug Kópavogs

Sundlaug Kópavogs er staðsett í vesturbæ Kópavogs stutt frá Hamraborginni og er einn stærsti sundstaður landsins. Þar eru sundlaugar úti og inni, ásamt heitum pottum, köldum potti, gufubaði og rennibrautum. Hjá lauginni starfa á fjórða tug manns, 7 til 10 starfsmenn á hverri vakt.

Laugin er opin virka daga frá kl. 06:30 til 22:00 og um helgar frá 08.00 til 20.00. Vinnan hefst 15 mín. fyrir opnun og lýkur 30 mín. eftir lokun. Unnið er á tveimur vöktum virka daga en einni vakt um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
Laugarvarsla sem felst í öryggiseftirliti og þrifum við laugar bæði úti og inni.
Baðvarsla sem einkum er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum kvenna auk öryggisgæslu á þeim stöðum.
Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.
Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsfólk sundlauga verður að vera orðið 20 ára.
Allgóð sundkunnátta er áskilin, því laugarverðir verða að standast sundpróf, sem er svipað og 10. sundstig grunnskóla.
Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
Góð samstarfshæfni og þjónustulund.
Sundlaug Kópavogs er reyklaus vinnustaður.
Auglýsing stofnuð31. maí 2023
Umsóknarfrestur10. júní 2023
Starfstegund
Staðsetning
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SundPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þrif
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.