
Sundhöll og íþróttamiðstöð Seyðisfirði
Íþróttamiðstöð Seyðisfjarðar var formlega tekin í notkun 1. febrúar 1999. Í íþróttahúsinu er rúmgóður salur, en þar rúmast t.a.m. löglegur handboltavöllur, 5 badmintonvellir, 2 körfuboltavellir, 3 blakvellir og 5 bocciavellir. Einnig er fullbúinn tækjasalur til líkamsræktar, gufa, kalt kar og heitur pottur í húsinu.
Sundhöll Seyðisfjarðar var byggð árið 1948 og var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins. Hún var formlega opnuð 8. júlí 1948 og varð því 70 ára árið 2018. Sundlaugin er innilaug 12,5 x 7m, lítil en vinaleg, með útipotti, köldu kari og sauna.

Sumarstarf í íþróttamiðstöð og Sundhöll Seyðisfirði
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir starfskrafti í sumarafleysingu í íþróttamiðstöð og Sundhöll á tímabilinu 1. maí - 31. ágúst 2026. Um er að ræða 80-100% starf og er vinnutíminn samkomulagsatriði. Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Seyðisfirði.
Starfið snýst um þjónustu við notendur stofnunarinnar og dagleg störf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla með gestum íþróttamiðstöðvar og sundhöll.
- Almenn afgreiðsla.
- Allar almennar ræstingar.
- Ýmis önnur störf við stofnunina.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og drifkraftur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni.
- Hreint sakavottorð.
- 18 ára og eldri
- Skyndihjálparkunnátta.
- Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.
Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiJákvæðniMetnaðurReyklausSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkyndihjálpTóbakslausVeiplaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lager
Vatnsvirkinn ehf

Lager Útideild
Vatnsvirkinn ehf

Hlutastarf í afgreiðslu
Lilja Björk Jewellery ehf.

Fullt starf hjá Gæludýr.is á AKUREYRI
Waterfront ehf

Ræstir - Cleaner / SELFOSS - PART TIME JOB
Eignaþrif

Front Desk Agent – Long-Term Position Hotel Klaustur | Kirkjubæjarklaustur, South Iceland
Hótel Klaustur

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður, afleysingastaða á lyflækningadeild
Landspítali

Lyfja Egilsstöðum - þjónusta og ráðgjöf - sumarstarf
Lyfja

Hefur þú áhuga á fluguveiði?
Veiðiflugur

Seasonal Hospitality Jobs for Couples - Staff Accommodation Available
Hotel Goðafoss

Hlutastarf - Akureyri
Flying Tiger Copenhagen

Sumarstarf hjá Vörukaup ehf
Vörukaup ehf