

Sumarstarf í framkvæmdareftirliti og mælingum
COWI leitar að öflugum og framsýnum háskólanema til að fást við verkefni á sviði framkvæmdareftirlits og mælinga í sumar. Í þessu starfi munt þú fá að kynnast gatna- og lagnaframkvæmdum og landmælingum þar sem helstu verkefnin eru daglegt eftirlit með framkvæmdum, kostnaðar- og gæðaeftirlit ásamt landmælingum. Því hentar bakgrunnur í byggingar- eða vélaverkfræði/tæknifræði sérstaklega vel. Ofan á það erum við að leita að fólki sem getur unnið í teymi, sýnir frumkvæði í starfi og brennur fyrir því sem það er að gera. Þú verður hluti af deild samgangna og veitna (e. transportation & utilities) COWI en hún fæst við fjölbreytt verkefni sem snúa að hönnun samgöngumannvirkja og veitulagna, gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna ásamt framkvæmdareftirliti.
Markmið COWI með sumarstörfum er að byggja upp framtíðarstarfsfólk og undanfarin ár hafa yfir 60% af sumarstarfsfólkinu verið áfram hjá okkur í einhverri mynd. Hjá COWI starfa sérfræðingar um allan heim og eru boðleiðir stuttar í fjölbreytt þekkingarnet innan samstæðunnar. Þetta er því spennandi tækifæri til að öðlast reynslu í alþjóðlegu umhverfi og kynnast því hvernig það er að vinna á verkfræðistofu.
- Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu á skrifstofu okkar í Kópavogi.
- Bootcamp í hádeginu þrjá daga í viku í Kópavogi.
- Samgöngustyrkur fyrir aðra samgöngumáta en einkabifreið.
- Líkamsræktar- og sturtuaðstaða í Kópavogi.
- Viðburðir á vegum öflugs starfsmannafélags.
Enska
Íslenska










