Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Sumarstarf í búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk

Kópavogsbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf í búsetuþjónustu fyrir fólk með geðrænar áskoranir, staðsett í efri byggð Kópavogs. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.

Mjög spennandi og skemmtilegt starf, þar sem verkefnin eru mjög fjölbreytt. Unnið er í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld og helgarvaktir en einnig geta næturvaktir verið í boði.

Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, en með möguleika á hlutastarfi í haust. Gott ef viðkomandi getur hafið störf um miðjan maí. Starfshlutfall er frá 60 -100%

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs

·         Hafa gaman í vinnunni, verða öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði

·         Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum

·         Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum

·         Almenn heimilisstörf

·         Samskipti við ýmsa þjónustuaðila

·         Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg

·         Þekking á hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar er kostur

·         Þjónustulund og jákvæðni í starfi

·         Hæfni í mannlegum samskiptum

·         Frumkvæði og samviskusemi

·         Sjálfstæði vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi

·         Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall

·         Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

·         Ökuréttindi skilyrði

Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar bæjarins 

Auglýsing birt26. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hörðukór 10, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar