

Sumarstarf – Aðstoð í eldhúsi
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvö hjúkrunarheimili á Akureyri, Hlíð og Lögmannshlíð, þar sem samtals dvelja hverju sinni um 170 manns.
Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi á sviði hjúkrunar- og öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Þar er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem m.a. er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu.
Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óska eftir að ráða starfsmann til sumarafleysinga við aðstoð í eldhúsi. Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu, sjálfstæði og dugnað til verka.
Um er að ræða 90% starfshlutfall í vaktavinnu, vinnutíminn er frá kl. 08:00-15:00.
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
- Umsækjendur þurfa að geta talað og skilið íslensku

















