

Sumarstarf á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk í Kópavogi
Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfmanni í dagvinnu í sumar á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk. Óskað er eftir 100 % starfsmanni sem getur unnið frá 8-16 og getur byrjað í starfi um miðjan maí.
Hæfingarstöðin býður upp á dagþjónustu, starfs- og vinnuþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga. Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnumhverfi.
Unnið er í skipulagðri hópavinnu og einstaklingsmiðaðri vinnu. Ýmiss þróunarverkefni eru í gangi, til að mynda vilji til að efla listasmiðju og verkefni tengd sköpun af ýmsu tagi.
Þátttaka í faglegu starfi.
Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við notendur í starfi.
Þátttaka í starfi fatlaðs fólks.
Góð almenn menntun og / eða reynsla sem nýtist í starfi
Stundvísi og samviskusemi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Framtakssemi og jákvæðni í starfi
Starfið getur verið líkamlega krefjandi
Góð íslenskukunnátta
Boðið er upp á mat þrisvar á dag, leiðbeinendum að kostnaðarlausu.
Skemmtilegt starfsumhverfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.



































