
Icelandair
Icelandair er líflegur vinnustaður með starfstöðvar á Íslandi, Evrópu og Norður-Ameríku. Við erum einn stærsti og fjölbreyttasti vinnustaður landsins og vinnum í alþjóðlegu og síbreytilegu umhverfi. Við fljúgum til fjölda stórborga í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada, og til áfangastaða innanlands og á Grænlandi.
Icelandair is a lively workplace with operations in Iceland, Europe and North America. We are one of the largest and most diverse companies in Iceland, and work in an international, and ever-changing environment. We fly to multiple cities in Europe, the United States and Canada, as well as destinations within Iceland and in Greenland.

Sumarstarf á flughlaði - Akureyrarflugvöllur
Icelandair leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytilegt starf við hleðslu og afhleðslu flugvéla á Akureyri. Um er að ræða tímabundin störf í vor og sumar með möguleika á áframhaldandi hlutastörfum í vetur (útköll). Starfið er vaktarvinna.
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.
Þeir sem valdir verða úr hópi umsækjenda þurfa að sækja undirbúningsnámskeið.
Hæfnikröfur:
- Stúdentspróf eða ígildi þess æskilegt
- Áhugi og reynsla af þjónustustörfum er mikilvæg
- Mjög góð íslensku og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Gilt bílpróf og vinnuvélaréttindi æskilegt
- 18 ára lágmarksaldur
Starfssvið:
- Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla svo sem lestun og losun
- Annast almenna starfsemi í flugstöð
- Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma
- Afgreiðsla og frágangur á vörusendingum
- Skoðun skilríkja og afgreiðsla farþega við brottfarahlið
- Staðfesta heildarfjölda farþega um borð
- Önnur þau störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir:
Ari Fossdal, stöðvarstjóri, [email protected]
Auglýsing birt15. febrúar 2024
Umsóknarfrestur15. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniLyftaraprófÖkuréttindiStundvísiVinna undir álagiVinnuvélaréttindiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)



