

Sumarstarf á Egilsstöðum
Við leitum að duglegum, vandvirkum og þjónustulunduðum einstaklingi í sumarvinnu á starfsstöð Bílaleigu Akureyrar í Fellabæ. Í starfinu felst afgreiðsla, akstur og ferjanir á bílum, ásamt þrifum á bílaflotanum.
Við leitum að hraustum einstaklingi sem er óhræddur við líkamlega vinnu. Unnið er frá 08:00-17:00 virka daga og aðra hvora helgi.
- Afgreiðsla
- Bílaþrif
- Ferjanir á bílum
- Rík þjónustulund
- Gilt ökuskírteini
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Stundvísi
- Jákvæðni og áreiðanleiki
- Hreint sakavottorð
- Enskukunnátta
Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota. Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.













