Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sumarafleysing. Sjúkraliði á handlækningadeild HVE Akranesi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi óskar eftir sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í 60-100% vinnu við afleysingar á handlækningadeild HVE sumarið 2025.

Við leitum að bæði sjúkraliðum og sjúkraliðanemum í sumarafleysingar á handlækningadeild HVE. Frábært tækifæri til að öðlast reynslu og þróa faglega hæfni þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, umhyggju og virðingu fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Í starfinu felst ábyrgð á öllu almennum verkefnum sjúkraliða í umönnum skjólstæðinga samkvæmt lögum og reglugerðum.

  • Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila. Á deildinni er veitt öll almenn þjónusta á sviði skurðlækninga, bráðatilvika og slysa.

  • Að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar deildarinnar og stofnunarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur

Gerð er krafa um

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi eða staðfesting á sjúkraliðanámi. Í boði er að taka starfsnám í sjúkraliðanámi.

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Góð íslenskukunnátta

  • Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki

  • Staðfestingu á bólusetningum,

Auglýsing birt24. janúar 2025
Umsóknarfrestur31. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Merkigerði 9, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar