Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingur á Silfurtún í Búðardal
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir hjúkrunarfræðingi til afleysinga á Silfurtún - hjúkrunardeild HVE Búðardal. Um er að ræða dagvinnu og bakvaktir.
Starfshlutfall er 50-100% eða eftir nánara samkomulagi.
Boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum.
Á deildinni er veitt almenn öldrunar hjúkrun á hjúkrunardeild.
Á deildinni er sérstaklega hlýr og góður starfsandi og mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
-
Starfsleyfi landlæknis.
-
Reynsla af hjúkrun er kostur.
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf.