
Stundakennari
Við í Vesturbæjarskóla leitum að stundakennara til að sinna afleysingakennslu þegar þörf er á. Starfið hentar vel fyrir einstakling sem hefur áhuga á að vinna með börnum og vill taka þátt í fjölbreyttu og lifandi skólastarfi. Stundakennarar eru kallaðir til eftir þörfum og getur starfið því hentað vel með námi eða öðru starfi. Vesturbæjarskóli er grunnskóli fyrir börn í 1.–7. bekk. Við leggjum áherslu á faglegt, fjölbreytt og skapandi skólastarf þar sem vellíðan barna, góð samskipti og gleði í námi eru í fyrirrúmi. Einkunnarorð skólans eru virðing, vellíðan og velgengni og við leggjum ríka áherslu á samstarf og góðan starfsanda. Á heimasíðu skólans má lesa meira um skólastarfið: https://vesturbaejarskoli.reykjavik.is/
- Forfallakennsla t.d. vegna tilfallandi styttri veikinda eða leyfa kennara.
- Samstarf við kennara og/eða foreldra eins og við á um nám og þroska nemenda.
- Fylgja stefnu skólans og skólanámskrá og vinna í teymi.
Við leitum að einstaklingi sem:
- er með kennaramenntun og kennsluréttindi eða háskólamenntun sem nýtist í starfi, kennslureynsla er æskileg,
- sýnir börnum áhuga, hlýju og umhyggju,
- ber virðingu fyrir fjölbreytileika og ólíkum þörfum barna,
- á auðvelt með að skapa góð tengsl við börn og fullorðna,
- er sveigjanlegur, jákvæður og lausnamiðaður,
- getur unnið vel í teymi og tekið virkan þátt í skólastarfinu.
Íslenska










