Nesskóli
Nesskóli
Nesskóli

Stuðningsfulltrúi óskast

Stuðningsfulltrúi við Nesskóla

Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa við Nesskóla. Um 100% starf er að ræða. Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2026. Leitað er að stuðningsfulltrúa með starfshæfni til að starfa með nemendum með aukna þjónustuþörf á yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Mikilvægt er að umsækjandi geti starfað á öllum stigum. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Nesskóli er grunnskóli með tæplega 190 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn stendur í hjarta bæjarins. Leikskóli, íþróttahús og Verkmennaskóli Austurlands eru í næsta nágrenni og stutt er í sundlaugina. Nesskóli er Byrjendalæsisskóli og Erasmus-skóli. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga er við lýði í skólanum og kennt er í anda Leiðsagnarnáms. Í skólanum er leitast við að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og áhersla er lögð á list- og verkgreinakennslu. Kjörorð skólans eru ,,Viska, Virðing, Vinátta".

Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
Nánari upplýsingar um Nesskóla má finna á heimasíðu skólans, nesskoli.is

Laun eru samkvæmt Sambandi íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026

Umsóknum skal fylgja gott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Allar nánari upplýsingar gefur: Sigrún Júlía Geirsdóttir skólastjóri [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar nemendur og reynir að ýta undir færni og sjálfstæði þeirra.
  • Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra sérkennslu og annarra ráðgjafa.
  • Gæsla nemenda í forföllum kennara.
  • Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á.
  • Frímínútnagæsla ýmist inni eða úti
  • Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Ábyrgð í starfi og stundvís
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfileikar
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skólavegur 9
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar