

Stuðningsfulltrúi og frístundaleiðbeinandi í náms- og starfssetri
Klettabær leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingum með jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileika til að sinna starfi stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinanda í náms- og starfssetri Klettabæjar. Verið er að leita af starfsfólki bæði í hlutastarf og í fullt starf í dagvinnu.
Klettabær starfrækir sértæk heimili til langs og skamms tíma, býður upp á fjölbreytta og einstaklingsmiðaða þjónustu og brennur fyrir velferð og hagsmuni barna og ungmenna með margþættar þarfir. Þá starfrækir Klettabær náms- og starfssetur fyrir börn og ungmenni með margþættar þarfir.
Stuðningsfulltrúi er virkur í faglegri vinnu og daglegum störfum undir leiðsögn kennara. Stuðningsfulltrúar vinna bæði sjálfstætt og í teymi og eru sveigjanlegir í að geta tileinkað sér nálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir hverju sinni. Starfið krefst góðrar samvinnu og samstarfs við stjórnendur og alla þá sem koma að málum nemanda.
Eftir skóla er starfrækt frístund hjá Klettabæ. Þar fá nemendur tækifæri á ýmissi afþreyingu sér til gagns og skemmtunar.
Megin markhópur Klettabæjar eru börn og ungmenni með margþættar þarfir sem þurfa sértæka og/eða einstaklingsmiðaða nálgun og þjónustu. Unnið er eftir hugmyndafræðinni fjöláfalla- og tengslamiðaður stuðningur. Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu.
Einkennisorð Klettabæjar eru ástríða, fagmennska, gleði og umhyggja.
Helstu verkefni
- Veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning á meðan nemandi er í náms- og starfssetri Klettabæjar.
- Fylgja eða taka á móti nemanda við komu í náms- og starfssetrið.
- Aðstoða nemanda í kennslustundum, frímínútum, matartímum og öðrum athöfnum.
- Fylgja nemanda í frístundarstarfi og starfssetri eftir skóla.
- Tileinka sér allar þær verklagsreglur sem gilda í náms- og starfssetri Klettabæjar.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Ábyrgð í starfi
- Starfa í samræmi við hugmyndafræði Klettabæjar og fylgir markmiðum og áherslum sem lagaðar eru fyrir nemanda.
- Vinna í samræmi við gildandi lög og samþykkta sáttmála sem ná utan um þjónustunotendur Klettabæjar
Menntunar- og hæfnikröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af umönnunar- og eða uppeldisstörfum
- Afburða færni í mannlegum samskiptum
- Færni í teymisvinnu
- Frumkvæði, faglegur metnaður og nákvæmni í starfi
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðun
- Hæfni til að starfa eftir öryggisverkferlum
- Færni í íslensku í rituðu og mæltu máli
- Almenn tölvukunátta
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Viðkomandi þarf að vera 21 árs og með hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmar Freyr Sigfússon, [email protected]
Lesa má meira um Klettabæ á www.klettabaer.is
Íslenska










