
Sólheimar ses
Sólheimar hafa starfað að mannrækt, umhverfis- og menningarmálum í 84 ár. Í byggðarhverfinu Sólheimum búa og starfa um 100 manns. Rekin er fjölþætt atvinnustarfsemi með garðyrkjustöð, skógræktarstöð, verslun, kaffihúsi, bakaríi, matvinnslu, jurtastofu og gistiheimili. Á staðnum eru fimm mismunandi listasmiðjur, leirgerð, listasmiðja, kertagerð, vefstofa og smíðastofa. Menningarstafssemi er fjölþætt og á Sólheimum er listhús, sýningarsalir, höggmyndagarður, trjásafn, kirkja, fræðasetrið Sesseljuhús og íþróttaleikhús.

Stuðningsfulltrúi í félagsþjónustu
Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa til starfa.
Um er að ræða fullt starf, staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Æskilegt er að viðkomandi starfsmaður hafi reynslu af störfum með fötluðu fólki, séu jákvæðir, hafi ríka þjónustulund, tali íslensku og hafi áhuga á að starfa í anda gilda Sólheima. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á 10 - 12 tíma vöktum í eina viku í senn með viku frí á milli.
Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veitir forstöðukona félagsþjónustu Aðalbjörg Jensdóttir, netfang; adalbjorg@solheimar.is
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita íbúum aðstoð við athafnir daglegs lífs
Framfylgja þjónustuáætlunum viðkomandi einstaklinga
Dagleg umsjón með heimilishaldi, þrifum og öðrum tilfallandi verkefnum
Hvetja íbúa til virkni, þjálfunar og þátttöku í félagslífi
Samstarf við íbúa, aðstandendur og annað starfsfólk
Tryggja að framkvæmd þjónustu sé í samræmi við lög og reglur
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð íslenskukunnátta
Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
Reglusemi áskilin
Starfsmaður skal hafa hreint sakavottorð
Reynsla af umönnunarstörfum æskileg
Bílpróf æskilegt
Fríðindi í starfi
Aðgangur að líkamsrækt og frí gisting í vinnulotum
Starfstegund
Staðsetning
Sólheimar 168279, 801 Selfoss
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónar í hlutastarf
Steikhúsið
Jobs in cleaning / Störf við ræstingar
Dictum Ræsting
Óska eftir ofurkonum!
NPA miðstöðin
Teymisstjóri í heimastuðning
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Tæknifólk á ferðinni
Securitas
Starfsmenn óskast í búsetukjarna
Andrastaðir
Umönnun framtíðarstarf - Garðabær
Hrafnista
Umönnun framtíðarstarf - Boðaþing
Hrafnista
Starfsmaður á athvarfið Læk – Lækur
Hafnarfjarðarbær
Móttökuritari á tannlæknastofu
JG tannlæknastofa sf
Umönnun hlutastarf - Skógarbær
Hrafnista
Aðstoðarfólk óskast á Akureyri - hlutastarf
NPA miðstöðinMá bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.