Kringlumýri frístundamiðstöð
Kringlumýri frístundamiðstöð
Frístundamiðstöðin Kringlumýri stendur fyrir viðamiklu frístundastarfi fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 – 16 ára í Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfi. Mikið er lagt upp úr því að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf á frístundaheimilum og í félagsmiðstöðvum. Starfsstaðir Kringlumýrar eru 15 samtals.

Stuðningsfulltrúi í félagsmiðstöð -Askja

Askja er starfrækt undir Frístundamiðstöðinni Kringlumýri sem starfrækir aðrar fimm félagsmiðstöðvar. Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva eru börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára. Félagsmiðstöðin Askja stendur fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónustar unglinga úr Klettaskóla. Klettaskóli er sérskóli fyrir börn og unglinga með fötlun. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Í boði er 30-50% hlutastarf eftir hádegi á virkum dögum kl.13-17. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og ungmenni
Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
Frumkvæði og sjálfstæði.
Færni í samskiptum.
Góð íslenskukunnátta.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
Stytting vinnuviku
Sundkort
Samgöngusamningur
Auglýsing stofnuð14. september 2023
Umsóknarfrestur9. október 2023
Starfstegund
Staðsetning
Suðurhlíð 9, 105 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.