Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Stuðningsfulltrúi í afleysing

Í Barnaskólanum eru 145 nemendur í 1. - 10. bekk. Skólinn starfar á tveimur starfsstöðvum, yngra stig á Stokkseyri og eldra stig á Eyrarbakka. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu, skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu, mikil áhersla lögð á góð samskipti, gott samstarf er við leikskólann og áhersla er lögð á góða samvinnu við nærumhverfið. Skólinn er Erasmus+ skóli, heilsueflandi grunnskóli og er í þróunarvinnu varðandi teymiskennslu, stafræna menntun, umhverfismennt og skólasýn. Skólinn er virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.

Við óskum eftir stuðningsfulltrúa í 75% afleysingastöðu frá þessum degi til og með 20. maí 2025, við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi.
  • Vinnur skv. áætlun kennara.
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt Aðalnámskrá eða einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara.
  • Aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð.
  • Aðstoðar nemendur við að klæðast, matast og aðrar athafnir daglegs lífs þurfi þeir á aðstoð að halda.
  • Veitir nemendum félagslegan stuðning með virkri hlustun og spjalli ef aðstæður leyfa. Fylgir einum eð afleiri nemendum á ferðum þeirra í skipulögðu skólastarfi.
  • Situr fundi eftir því sem við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Formleg próf af styttri námsbraut er æskileg, s.s. stuðningsfulltrúanám.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af uppeldisstörfum er kostur.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Auglýsing birt28. janúar 2025
Umsóknarfrestur4. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar