Stuðningsfulltrúa vantar á íbúðarkjarna í Grafarvogi
Laus er 80% staða stuðningsfulltrúa á íbúðarkjarna í Grafarvogi á blönduðum vöktum. Staðan er tímabundin til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laus er staða stuðningsfulltrúa á íbúðakjarnanum Móavegi 10 í Grafarvogi. Staðan er 80%. Um blandaðar vaktir eru að ræða. Á Móavegi er lögð áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi með það að markmiði að aðstoða þau í að skapa og þróa ný tækifæri í sínu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.
Um tímabunda stöðu er að ræða til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
- Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
- Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
- Markmiðið er að styðja einstaklinga við að búa á eigin heimili, stunda vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
- Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins og laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.