Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 40 þúsund íbúa. Nafn bæjarins er dregið af jörðinni Kópavogi sem ríkissjóður átti í byrjun síðustu aldar og leigði út ásamt annarri jörð Digranesi í nágrenni hennar. Kópavogshreppur var stofnaður í byrjun árs 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900. Hreppurinn óx hratt og voru íbúar orðnir 3.783 þegar Kópavogur hlaut kaupstaðarréttindi 11. maí árið 1955. Í Kópavogi er mikil og fjölbreytt atvinnustarfsemi. Mest er um iðnað, þjónustu og verslun af ýmsu tagi og má geta þess að Smáralind er stærsta verslunarmiðstöð landsins. Í bænum eru fjölbreytt tækifæri til útivistar og aðstaða til íþróttaiðkunar er með því besta sem þekkist. Þá eru Kópavogsbúar afar stoltir af menningarstofnunum sínum á Borgarholtinu, svo sem Salnum, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Tónlistarsafni Íslands og Molanum, ungmennahúsi Kópavogs.
Kópavogsbær

Stuðningsaðili á Velferðarsviði

Stuðningsaðili á Velferðarsviði

Liðveitendur, persónulegir ráðgjafar og tilsjón

Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki til að sinna fjölbreyttri stuðningsþjónustu við einstaklinga, börn, unglinga og fullorðna í daglegu lífi innan og utan heimilis. Markmið þjónustunnar hjá Kópavogsbæ er að veita persónulega og einstaklingsmiðaða þjónustu.

Um er að ræða starf sem miðar að hvatningu við félagslega þátttöku, tómstundir og uppbyggilega samveru og hjá börnum og unglingum getur einnig verið um heimanámsaðstoð að ræða og hjá fullorðnum heimilishald og aðstoð við athafnir daglegs lífs.

Hæfniskröfur

  • Jákvæðni og áhugi á að starfa með einstaklingum á öllum aldri
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi, samviskusemi og reglusemi
  • Gott er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fólki með fötlun (en þó ekki skilyrði þar sem það er misjafnt eftir málum).
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Æskilegt er að töluð sé íslenska

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Vinnutími á mánuði er frá 8 til 30 klst. en fer það eftir þörfum hvers einstaklings.
  • Vinnutími er breytilegur, virkir dagar og helgar, oft eftir kl. 15:00 á virkum dögum en sumir þjónustuþegar hafa þörf fyrir morgun- og eða kvöldtíma.
  • Um er að ræða tímavinnu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélag.

Allir einstalkinagar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningar.

Þau sem ráðin eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði og veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Upplýsingar um starfið veitir Hrafnhildur Sigurðardóttir
hrafnhildur.sigurdardottir@kopavogur.is

Eingöngu er tekið við umsóknum í starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs.

Auglýsing stofnuð14. september 2023
UmsóknarfresturEnginn
Starfstegund
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.