First Water
First Water
First Water starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn. Verkefnið nýtur afburða aðstæðna í Ölfusi þar sem gott aðgengi er að landrými, umhverfisvænni orku og ekki síst tæru ferskvatni og sjóvatni við kjörhitastig fyrir laxeldi. Uppbyggingin miðar að sjálfbærri og umhverfisvænni framleiðslu þar sem lax er alinn við kjöraðstæður í hreinum sjó sem dælt er upp í gegnum hraunlög á svæðinu og öll orka kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum vatns- og gufuaflsvirkjana Landsvirkjunar. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því mikla áherslu á að upp öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks. First Water kappkostar að bjóða upp á gott starfsumhverfi á skemmtilegum og samheldnum vinnustað
First Water

Stöðvastjóri First Water

First Water leitar að öflugum aðila í starf stöðvastjóra í eldisstöðvum félagsins á Laxabraut í Þorlákshöfn og Öxnalæk í Hveragerði.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Daglegur rekstur stöðva
  • Starfsmannastjórnun
  • Verkstjórnun
  • Kostnaðareftirlit
  • Tryggja innra eftirlit, gæðastjórnun og smitvarnir stöðva ásamt gæðastjórum.
  • Áætlanagerð, skráningar og skýrslugerð.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í fiskeldi, líffræði eða sjávarútvegsfræði eða önnur menntun kostur
  • Haldgóð reynsla af fiskeldi er kostur
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð

Nánari upplýsingar veitir Stefán Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, stefan@firstwater.is

Umsóknafrestur er til og með 18. september 2023.

First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.

Auglýsing stofnuð11. september 2023
Umsóknarfrestur24. september 2023
Starfstegund
Staðsetning
Laxabraut
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.