Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Stöðvarstjóri Mývatnssvæðis

Langar þig að leiða nýtingu endurnýjanlegra orkuauðlinda?

Við hjá Landsvirkjun vinnum markvisst að því að tryggja sjálfbæra og örugga orkuvinnslu til að styðja við orkuskipti og samfélagið allt á komandi árum. Á Norðurlandi starfrækjum við þrjár aflstöðvar sem nýta jarðvarma til raforkuvinnslu – og leitum að öflugum og framsýnum leiðtoga með brennandi áhuga á orkumálum.

Starfið felur í sér stjórnun og rekstur jarðgufustöðva á Mývatnssvæðinu: Kröflustöðvar, Þeistareykjastöðvar og Gufustöðvarinnar við Bjarnarflag. Sem stöðvarstjóri berð þú ábyrgð á rekstri, viðhaldi, öryggis- og umhverfismálum aflstöðvanna.

Í starfinu þarftu að sýna faglega og persónulega forystu. Þú leiðir og styður öflugt teymi starfsfólks, stýrir daglegum rekstri, fylgist með framvindu og kostnaði verkefna og mótar jákvæðan og heilbrigðan starfsanda. Þú verður hluti af framsæknu teymi stjórnenda og færð tækifæri til að leiða metnaðarfullt starfsfólk með sjálfbærni, öryggi og vellíðan að leiðarljósi.

Við hverju má búast?

  • Að stýra daglegum rekstri jarðgufuvirkjana á Norðurlandi með framtíðarsýn Landsvirkjunar að leiðarljósi
  • Að bera ábyrgð á eftirliti með orkuvirkjum, skipuleggja viðhald og fylgja því eftir
  • Að leiða og efla mannauð aflstöðvanna og styðja við þróun þekkingar og hæfni starfsfólks
  • Að vinna náið með helstu haghöfum og tryggja gott samstarf og sátt við nærumhverfið
  • Að bera ábyrgð á ferlum, fjármunum og eignum í samræmi við gildi fyrirtækisins

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi , s.s. á sviði rafmagns eða véla
  • Leiðtogahæfni, reynsla af stjórnun og færni í notkun upplýsingatækni
  • Reynsla af rekstri og viðhaldsstjórnun, öryggis- og gæðamálum
  • Frumkvæði og jákvæðni, framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni
  • Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Við leggjum ríka áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Sem hluti af okkar teymi tekur þú þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á samfélagið og hafa bein áhrif á orkuvinnslugetu framtíðarinnar. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað vekur áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á [email protected] eða [email protected].

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kröfluvirkjun 153706, 660 Mývatn
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar