N1
N1 sér fólki og fyrirtækjum fyrir eldsneyti, raforku, rekstrarvörum, veitingum og afþreyingu á þjónustustöðvum félagsins um allt land. Okkar hlutverk er að halda samfélaginu á hreyfingu með persónulegri þjónustu og markvissu vöruúrvali sem uppfyllir kröfur viðskiptavina hvert sem ferð þeirra er heitið.
N1 sparar viðskiptavinum bæði tíma og fyrirhöfn með þéttu neti þjónustustöðva og umbunar þeim með margvíslegum ávinningi af viðskiptunum, m.a. með N1 kortinu sem safnar punktum og nýtast á N1 stöðvum um land allt.
N1 starfar út frá þremur grunngildum sem eru: virðing, einfaldleiki og kraftur. Við sýnum hvert öðru virðingu, veitum þjónustu sem við getum verið stolt af og berum virðingu fyrir umhverfinu. Við leggjum okkur fram við að einfalda líf viðskiptavina okkar og liðsinna með góðu aðgengi að vörum okkar og þjónustu. Við hleypum krafti í samfélagið með öflugri dreifingu og afgreiðslu eldsneytis en einnig með stuðningi við hreyfingu, heilsubót og góð málefni sem auðga mannlífið.
Vel staðsettar þjónustustöðvar og verslanir um land allt, fyrsta flokks dekkja- og smurþjónusta og öflug fyrirtækjaþjónusta gera N1 að sterkri heild sem er mikilvægur hluti af íslensku samfélagi.
Stöðvarstjóri Höfn í Hornafirði
N1 leitar að kraftmiklum og drífandi einstaklingi til að stýra þjónustustöð félagsins á Höfn í Hornafirði.
Um er að ræða líflegt og fjölbreytt starf sem krefst frumkvæðis og metnaðar.
Helstu verkefni:
-
Daglegur rekstur verslunarinnar
-
Verk- og starfsmannastjórnun
-
Innkaup og samskipti við birgja
-
Brigðastýring og kostnaðareftirlit
-
Önnur tilfallandi störf á stöðinni
Hæfniskröfur:
-
Menntun á sviði verslunarstjórnunar eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla á sviði verslunar-, þjónustu - og veitingareksturs
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Frumkvæði og árangursdrifni
-
Góð samskiptafærni og jákvætt viðhorf
-
Leiðtogahæfileikar
Fríðindi í starfi:
-
Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
-
Aðgangur að Velferðarþjónustu N1
Umsóknarfrestur er til og með 23.október 2024.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Viðar Stefánsson forstöðumaður einstaklingssviðs, jonvidar@n1.is.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is - merkt stöðvarstjóri Höfn, ferilskrá og kynningarbréf fylgi með umsókn.
Auglýsing birt11. október 2024
Umsóknarfrestur23. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Staðsetning
Vesturbraut 1, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)
Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær
Stöðvarstjóri - Akureyri
Terra hf.
Ýmis störf hjá 66°NORÐUR
66°North
Flokkstjóri ræstinga óskast til starfa hjá iClean
iClean ehf.
Vaktstjóri í sal
Strikid Restaurant
Aðstoðarverslunarstjóri á Selfossi
JYSK
Bar Supervisor
The Reykjavik EDITION
Hjúkrunardeildarstjóri á verkjamiðstöð
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi
Landspítali
Samlokumeistari Subway
Subway